18.09.2007 22:34:53 / gtorfig
blabla
»
01.05.2007 15:57:41 / gtorfig
Jæja flott að skrifa hér á degi Gumma Jaka heitins það var mikill
leiðtogi .. en já það er allt fínt að frétta af gamla þarf að tala
við nokkra góða menn til að ég verði sáttur við Guð og menn annars
er ég mjög nettur í dag og er á fullu að skoða skóla bæði hér og
erlendis og einnig að stunda mitt daglega prógram og já ég er ekki
lengur í þjóðkirkjuni hef svosem ekkert á móti henni ég er bara
ekki að spila fyrir hana og fór þess vegna á free transfer í
Hvítasunnukirkjuna þetta var komið gott í þjóðkirkjuni búinn að
vera leikmaður þar í 35 ár og komin tími til að skipta um félag...
( var þetta ekki vel orðað hjá mér ) skrifa meira í kvöld ..
»
25.03.2007 15:48:05 / gtorfig
Nú er maður kominn í smá stellingar í sófanum á
sunnudegi til að skrifa nokkarar línur á blað
það hefur nú margt gerst þessa dagana en ég byrja á laugardeginum
17 mars en þá var mikið fjör ég byrjaði á því að fara í World class
og hljóð þar í 40 mín áður en ég skakklabbaðist í
Gospel hringinn minn og tók á því í 45 mín en þá þurfti ég að fara
í sturtu og koma mér í skírn
á mettíma það tókst og kom ég í Glaðheima akkúrat kl.15.00 í
skírnina hjá Heiðari bróðir og Guðríði en þau voru að láta skíra
sæta prinsinn sinn hann Veigar og fór það vel fram en rúsínan í
pylsuendanum var að Heiðar og Guðríður giftu sig í leiðini öllum að
óvörum en til mikilar gleði þar tók maður sig til og borðaði um 2
kg af sætindum og hafði gaman af því næst skrapp maður heim og tók
að stoppa í sokka og strauja nærbuxurnar ásamt því að hlusta á
Þjóðlaga tónlist frá Búlgaríu ( mæli ekki með henni ) en já svo var
brunað á Argentínu steikhús í Nautalundir og Ís og var það alveg að
gera glimrandi lukku vorum þar the VIP fólkið þeirra brúðhjóna..
Þannig að þetta var frábær dagur..
Nú á Sunnudeginum var farið í Blá Lónið og borðið á sig
þessa skemmtilegu hvítu leðju.
The Fellow ship of the Trip voru eftirtaldir Ég,María, Bergrós
Lilja og vinkona hennar ..svaka stemming
María fór ekki í lónið en þess í stað tók hún nokkrar myndir af
bakkanum af fallega fólkinu..
Svo kemur hér ein góð sem gerðist eftir vinnu á föstudag
en ég brunaði til Mosó til að hjálpa Heiðari og Guðríði að flytja
og einnig til að fá Ítalska sófann hennar Unu systir og stól í stíl
nú eftir að hafa tekið á því í burði þá fórum við bræður af stað
með sófann og stólinn í kerru vorum búinn að setja einangrunarplast
ofan á settiðen vorum ekki með neitttil að festa settið..þannig að
Heiðar ætlaði bara að keyra hægt ( yeah Right ) Heiðar keyrir
aldrei hægt..en já við vorum í flútti við Heilsubælið í Gerjahverfi
þegar plastið fauk uppog snáfaðist af kerruni og ekkert smá plast
þannig að við tókum U-beygju við næsta hringtorg og keyrðum áleiðis
að plastinu sem var eins og stór Godzilla að reyna að éta bílana
sem óku í átt til Reykjavíkur þannig að ég hljóp af stað eftir
Godzillu og bílar stop þarna enda ekki gaman að sjá Risa plast koma
á móti sér og
einhvern Geðveikan mann á eftir því
en það tókst að yfirbuga
plastið og ég kom tilbaka til skellihlægjandi bróðir míns..jæja þá
var bara að snúa við á næstu U-beygju sem mátti aðvísu ekki taka en
við bara nenntum ekkiað keyra alla leið til Þingvalla til að snúa
við já svo þegar við vorum svona 20 m frá brúnni sem tengir
Grafarholt og Grafarvog þá brá mér illilega þegar Heiðar
gólaði..nnnnnnnnnnneiiiiiiiiiii maður fucccccccckkk þetta er
rrrrrrrrrooosalegt ..ég leit uppá brúnna til að skoða hvort bílslys
hafði orðið en ekkert sá ..kíkti svo í bakgluggann og boy oh boy
ítalska settið hafði tekist á loft og puðraðist af kerruni og beint
á Þjóðveg 1.
sem betur fer voru bílar langt frá en við lögðum út í kant og
hljópum á eftir settinu sem var þarna eins ogbara heima í stofu
vantaði bara sjónvarpið þarna á miðri götu já og hellingur af bílum
komnir að þessu við drössluðum settinu útí kant og Heiðar tók hring
á bílnum og ég beið þarna útí kanti með settið og bílarnir sem óku
framhjá góndu á þennann furðulega mann með sófasett einhverstaðar
middle of nowwhere en þetta blessaðist svo allt saman og er ég td.
að pikka þessar línu í settinu
já við hlógum dátt af þessu
eftirá en fyrir Guðs lukku
þá varð ekkert slys af þessu ævintýri...Góðar stundir þangað til
næst.
»
12.03.2007 22:49:51 / gtorfig
Nú hefur aldeilis drifið á daginn hjá kappanum..hef nú ekki
verið að skrifa neitt hér í langann tíma..en ég hef verið too busy
looking good eins og maðurin sagði í esso á Blönduósi um árið
réttara sagt árið 1989.. þegar Hvöt var í riðli með Æskuni og
fleiri frægum liðum...En já ég dreif mig í extreme Lifetime
Homosapiens Makeover á Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal 5 stjörnu Kofi
þar á ferð og sérstakur Reykkofi fyrir eðalfólkið sem hefur efni á
því að kveikja sér í Nikótínstaup var þar einnig klæddur gylltum
kubbum frá Paba Gíneu..ekki slæm afmælisgjöf það.....Gekk ferðin
vel og endaði bara eins og í Ævintýri Búkollu og Bóndasonar hér
endur fyrir löngu..Ég er að starfa við smíðar hjá Hermanni
Hörkutóli Ara..er kominn þangað aftur eftir smádvöl hjá LHG þar sem
maður gerði margt og eftirminnilegt líka..Ég er núna búsettur í
Reykjavík og leigi stúdíóíbúð uppá Höfða og er sáttur bara við menn
og mýs .. Stefnan er tekinn á HR í haust á frumgreinasvið og fer ég
í viðtal á miðvikudaginn og fljótlega kemur í ljós hvort GLF-inn
komist inn..ekki ónýtt að fara á skólabekk eftir alla fangavinnuna
í gegnum árinn...Ég er alltaf að reyna að vera betri ídag en í gær
tekst stundum ekki því stundum var ég svo rosalega góður einn
daginn að ég bara gat ekki toppað það daginn eftir
meira bullið
í manni alltaf..já ég er orðinn Ofsatrúar og passið ykkur bara á
mér.. gæti farið að Sjanghæ-a ykkur inná samkomur
nei nei en
lífið er nú bara svo að um leið og maður finnur loksins tilgang
lífsins eða svona hér um bil þá er auðveldara að taka þátt í lífinu
og fyllast af öllu því sem gott er...en þetta er nóg í bili ..
Hafið það sem allra best lesendur góðir og endilega hendið inn línu
svo maður viti nú hverjir koma hér inn
Lifi Liverpool
..
»
26.05.2006 11:35:44 / gtorfig
Góðann daginn nú er maður
í helgarfríi vann
nefnilega í gær daginn í dag afmér í vinnunni ..nú er maður að
setja gifsplötur upp hjá búmönnum í Njarðvík og er það Bra ..er
nefnilega að vinna
í sumar hjá Svani frænda í smíðum erum 4 að smíða Arsenal maður
2 Man.Utd og svo ég poolari fín planda og skotið
reglulega J
Heiðar bróðir
að gera gott mót í svíðþjóð og er efstur fyrir seinasta
daginn á Kinnaborg mótinu og vonandi heldur hann áfram að
spila vel ...340 kall ef hann vinnur þannig að við vonum það
besta enda drengurinn orðinn hressari eftir meiðsli ...gamla
settið og una og dætur ásamt Sæma frænda eru svo að fara til
tenerife 15 júní í 2 vikur sem þýðir að maður fær frið eftir
vinnu til að horfa á HM í Fússbolta J
svo fer bráðum
að draga til tíðinda í fjölskylduni von bráðar en ekkert
gefið upp á þessu stigi....bíllinn minn orðinn fullfrískur
eftir að hafa skipt um vatnsdælu og tímareim og jú eina sem
er eftir er að skipta um olíusíu og tappa af olíunni og fá
nýja í staðinn sem er mjög mikilvægt J
fór með dekkið
sem er búið að vera vindlaust síðan ég lét umfelga um daginn
og kom í ljós líka þessi 4” nagli í dekkinu ég hef semsagt
keyrt beint á kvikindið eftir umfelguna..sem er gott...já já
loksins er veðrið að skána tala nú ekki um heima á Blönduósi
búið að snjóa þar í gríð og erg ..já ég skrifa heima á
blönduósi ..það er nú bara þannig og ég á voða erfitt með að
segja bara Blönduós enda búinn að búa þar nánast allt mitt
líf og Blönduós verður alltaf “heima” hjá mér
J
..kosningar að
ganga í garð og hér í garðinum eru 2 listar x-a og
x-n og ég hef
aðeins verið að kynna mér það þó ég sé nú meira inní
pólitíkini heima á dósini enda þekkir maður meira til þar
...sé að þar eru góðir menn á lista eins og Alli og Kári
mínir gömlu sjófélagar toppmenn báðir tveir..já svo fer að
styttast í HM það verður fjör í júní og í kaffitímum í
vinnunni mínir menn eru náttúrulega England enda í
Englendinga-klúbbnum góða sem saman stendur af 3 meðlimum
Johnny Macca og Chris ..svo bíð ég spenntur eftir með hverjum
Jón Árni öðrunafni Golf Kilo út á sjó og í landi Bravo Romeo
J
hann er
nefnilega rammgöldróttur spáði Grikkjum sigri á EM seinast og
svo Finnum í euró og hvað gerðist.. en hann er alveg að falla
á tíma en vonandi verður hann búinn að finna lið og
tilvonandi HM meistara......14 júlí fer ég svo í vikufrí og
er búinn að leigja mér bústað í Húsafelli í viku og ætla þar
að hafa það gott....see ja
»
24.05.2006 22:18:06 / gtorfig
jæja sá að 22 hafi farið hér inn í dag..ætla
bara að segja það að pistill kemur á morgun var að horfa á
Grindavík - Keflavík 1-1 í rokleik dauðans..en já 2morro ..
»
29.04.2006 12:19:55 / gtorfig
Góðann daginn hálsar.. jæja nú er
ég að horfa á Chelsea-Man.Utd og er Gallas búinn að setja eitt
stk fyrir Dinamo Chelsea og Rooney búinn að vera frábær
..ótrúlega góður leikmaður þar á ferð og strákur rétt um tvítugt
usss hrikalega vel gert hjá honum að prjóna sig ´gegn á 22 min
en skotið alveg arfi ...jájá gamla settið fór inneftir í rvk og
er áætlunin að kaupa felgur fyrir sumardekkinn á Meganinn..svo
er Andre bróðir Maríu minnar að koma í athvarfið að sprauta
brettið um 15:00 nóg að gera í dag ..svo er bara að henda bílnum
í Keflavík í stillingu og svo skoðun og fákurinn er til í
slaginn...Meganinn búinn að fara í góða klössun notað en nýtt
pústkerfi sett á hann og búið að setja stuðara og annað nýtt dót
sem hefur verið sprautað og svona..þannig að þetta er hið besta
mál...Ég verð svo að vinna hjá Steina Mág á Grand Rokk á
sunnudagskvöld..verð líklega að vinna þar aðrahverja helgi í
sumar ...gott að hafa svona sérfræðing eins og mig á
barnum
J
verð nú samt að segja
Nonna það að ég held að Black Sheep fáist ekki þarna.. og alveg
örugglega bara ekki á landinu.. Vikivaki alltaf á undan okkur þegar
kemur að drykkju
J
...Vona að Marvin
komi fljót heim aftur frá sir.Lanka það er víst allt að gerast
þarna og ekkert vit í því að vera að þvælast þar lengi.. já og
vonandi gengur þetta eftir hjá Örnu og Viggó það sem þau eru að
standa í .. sem minnir mig á að vonandi hafi verið gaman hjá
V&M Group family í gær....svo ein frétt í lokinn ég fór í sund
hér í garðinum í gærmorgun og hugðist taka á því í 800 metra
fjórsundi og enda svo í 1500 m skriði og 50 m bringu svo þessi
staðlaði pakki hjá mér
J
já ég var kominn í
sundlaugina og setti á mig sundgleraugu sem ég notaði síðast 1984
og ég hefði betur sleppt því ..minn maður búinn að synda ca 15
metra þegar ég kom auga á einhverja steina á botninum (misstóra) og
hugðist kíkja á þá betur en þegar nær var komið var sett í bakgír
og 45 gráðu handbremsubeygja og farið til baka og beint í pottinn í
30 min... svo var bara notað góðann slurk af sápu eftir sundið og
svona...say no more.. heilsen í bili ...Narra
»
28.04.2006 14:45:12 / gtorfig
Jæja þá er að skella á Maí með hækkandi
sól og allt það..ákvað að setja niður hér smá krot..apríl hefur
bara verið fínn og margt brallað ..var að vísu búinn að skrifa
pistill hérna áðann en hann fuckaðist upp einhvernveginn ..sem
er gott..NOT ARGG en skítur skeður og nú er bara að taka tvö..
verð að hrósa mínum mönnum fyrir að gera lífið Séð & Heyrt
lega með því að koma á porno-mobil og dresses to kill á hinn
árlega fögnuð sinn
J
hefði viljað sjá
danskóla Rögnvals Snögga fara hamförum á florinu heyrði það að
gærurnar hefðu þurft að taka upp GPS eftir snúningana alla með
kvikindinu enda maðurinn settur í A-dilk þegar kemur að Cha Cha
Cha og Vínarvalsinum að ógleymdum Skottís og Ræl hef samt lúmskann
grun um að JÁÁ kunni hann uppá 10 eftir alla dvölina í Bárðardal í
denn
J
spurning hvort
Prodigy hafi verið sett á phóninn þarna uppfrá ( þá hefði dansinn
góði komið sér vel say no more ) Nú þríeykið “SEM ER GOTT” sem
samanstendur af brottfluttum þingeyingum já þarna kom
Bárðardalurinn aftur við sögu
J
kom þarna víst sá og
sigraði með svo eggjandi söng að gestir voru farnir að henda í þá
gjaldeyri ..samkvæmt
kb.is var þetta rúmlega 2500 kall sem er nú ekki ónýtt svona rétt
fyrir sauðburð.. Svo kom sú frétt með Breiðþotu Rússneska hersins
að Gunni Palli ætlar að leggja sig um helgina og steypa sér í
edrúmennsku vegna bilana í stoðkerfi og anna síðastliðna daga sökum
vökvasöfnunar..kallinn bara að lensa um helgina Sem er gott
..skepnan bað um að láta Hreppsnefnd Raufarhafnar njóta góðs af
krönsum og öðru dótaríi ef menn vildu samgleðjast 35 ára
kvikindinu..já svo er spuning hvort Lima Hotel Golf eigi að leigja
þyrlur og svona í staðinn fyrir að kaupa þær.. þetta er allt
spurning.. hvernig væri að kaupa bara smá kvóta t.d trillu með
sóknardaga og róa svolitið nóg er af fiski og menn geta notað ca 4
rúllur á dallinum og svo myndi Páll Egilsson fljóta með og hafa 3
fyrir sig(semsagt 7 ) þá ekki DNG heldur gömlu góðu djöflana.. held
að það svínvirki á grillið...jájá ég var dyravörður á Grand Rokk um
daginn eitthvað hallæri hjá mági mínum og ég hljóp í skarðið og
skoðaði ID hjá flestum var orðinn svo ruglaður að maður var farinn
að taka tekk á mönnum sem voru 60 módelið
J
það var kannski
fullgróft en svona er þetta bara góurinn ..svo er maður að fara að
gerast Emil í
Kattholti í sumar hjá frænda taka upp hamar og önnur barefli og
skellihlæja að þessu öllu saman og hlusta á Hallbjörn Hjartarsson í
útvarpinu .. næst hann ekki í Bítlabænum .nei já hann er OFF svo er
Renault Megan að fara að skríða á götuna búinn að vera að tjasla
honum saman núna í 2 vikur sem er gott..en hvað um það maðurinn sem
er sjálfum sér vestur og öðrum til ama og leiðinda er
farinn
J
Narra
»
18.05.2005 21:02:21 / gtorfig
Jæja hvur andskotinn ekki búinn að skrifa í smá tíma .. búinn að
gera hitt og þetta ..Hvítasunnann var ágæt kíkti til Keflavíkur á
föstudagskvöldið og var það skítsæmilegt..þekkti fáa en samt nokkra
þar ..ekki fannst mér nú margir vera út á lífinu þar .. hvað varð
um alla bítlastemminguna
en já fór svo í afmælisveislu hjá
frænkum mínum á laugardeginum með Maríu og þar var étið á sig gat
og eftir það fórum við niður í bæ á kaffihús og meðlæti ( enn
meiri kræsingar ) á sunnudeginum var farið að stafnesvita í sól og
blíðu og fórum við í smá fótbolta þar í lok ferðar enda
fínn knattspyrnuvöllur þar með fótbolta included..nú svo var
farið eitthvað meira t.d. í stór kauptúnið Hafnir og rúntur tekinn
að bryggjunni..skemmtilega fín bryggja en spurning hvort eða
réttara sagt hvenær kom bátur þar í land seinast..humm... ég fór
svo í jarðaför í gær þar sem litla frænkan mín sem barðist
hetjulega við sjúkdóm sinn þurfti að yfirgefa
þennann heim á sínu 8 ári .. Blessuð sé minnig Jóhönnu
Margrétar sem var Hetja vægt til orða tekið......
Nú já og í dag er maður búinn að vera að stúsast þetta var
tildæmis að setja upp eitt stk. svefnsófa fyrir múttu gömlu
..skrúfur og drasl útum allann sófa..djö..sem ég var orðinn tæpur á
geði á tímabili með gömlu alltaf með einhverjar spurningar og ég
sveittur að skrúfa og svona ... well hver hefur ekki lent í því
en já svo er bara að fara að koma tími á sjómannatúrinn ..svo einn
í viðbót og sumarfrí já og boltinn farinn að
rúlla þannig að þetta er allt að verða hið besta mál
ekki meira í bili ..ps nýjar myndir inni ( húhaa
)
»
13.05.2005 14:31:56 / gtorfig
»
11.05.2005 18:35:16 / gtorfig
»
11.05.2005 02:15:25 / gtorfig
»
10.05.2005 12:57:53 / gtorfig
Írskur veiðimaður fékk óvæntan feng
um helgina þegar hann setti í grunsamlega þungan pakka sem
reyndist vera fullur af fíkniefnum. Verðmæti efnanna sem
veiðimaðurinn fann var 33 milljónir króna.
Maðurinn var við veiðar í ánni Liffey í
Wicklow-sýslu rétt sunnan við Dublin. Öngullinn festist í
undarlegum hlut og þegar hann hafði náð honum í land kom í ljós að
í honum voru kannabisefni vafin í plast.
Hann lét lögreglu vita og fundu kafarar
á hennar vegum tólf pakka í viðbót. Talið er að verðmæti efnisins
sé um 400.000 evrur eða 32 milljónir króna.
„Það er búið að senda efnið til
greiningar,“ sagði talsmaður lögreglunnar. „Þetta var aldeilis
fengur.“
»
09.05.2005 13:49:39 / gtorfig
Jæja þá er kominn mánudagur og ný vinnuvika byrjuð hjá flestum
Frændi spáði rétt með leikinn í gær ..hefði Riise gefið tuðruna
í fyrri hálfleik þá hefði kannski pool gert eitthvað af viti en
skítur skeður eins og maður segir og því fór sem fór ..alveg eins
og leikmennirnir nenna ekki að keppa í champ leage á næsta
ári
.. en nóg um það...Ég og María fórum að Garðskagavita í
gær og þar sá ég eitthvað ferlega fáránlegan hlut út á sjó hélt
fyrst að þetta væri sker en mundi bara ekki eftir þessu skeri
..horfði svo meira á þetta og þá var skerið on the move og einhver
lóðs eða eitthvað bátslíki að draga þetta sker ..María hélt að
þetta væri kafbátur en svo var nú ekki ..án þess að hafa hugmynd um
hvað í helv...þetta var þá tel ég að þetta hafi verið einhver
prammi í togi á leið vestur .... Ætlaði til Moskvu í dag og
flytja ræðu á rauða torginu en nennti því ekki og fór út með ruslið
í staðinn... jæja nú er best að fara í gym-ið og horfa á
hlaupabrettið rúlla...
Immer widdersen
»
07.05.2005 11:18:18 / gtorfig
Jæja vaknaði um 6 leytið á laugardegi ..hvað er í gangi en
varað að skutla junior on the leif eiriks airport hann ætlaði
að forðast biðraðir..en boy oj boy þessi líka fjöldi af skepnum sem
voru mættir heheheh en hann var samt heppinn því þegar ég var að
fara til baka komu 3 fullar rútur af kvikindum.. en já ég svaf í 2
tíma eftir það gat bara ekki sofið meira ..ætlaði bara að fara í
vinnugallann og fara að mála eða eitthvað sem maður er vanur
en
já ég er í fríi þannig að þá er bara að bíða eftir chelsea -
charlton á stamford bridges og sjá smárann taka dolluna.... sólin
skín og úfinn sjór hér á sléttuni.... ..Gísli Martein í kvöld bara
kveðjuþáttur ..veit þá ekki hvað Nonni gerir eftir það
Já svo eru ameríkukallarnir alveg hættir að senda
flöskuskeyti henda bara heilu dufli uppá 250.000 dollara uppá
grínið...spurning hvort strákarnir sem fundu það
og komu því til bjarga fái eitthvað í fundarlaun
en hafið það gott í dag ..
»
Síður:
1 2